Vatnshellir

Uncategorized @is

Vatnshellir er hraunhellir í suðurhlíðum Purkhólahrauns undir Snæfellsjökli. Hraunið og hellirinn eru talin vera um 5-8000 ára gömul. Vatnshellir er um 200 m langur og þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Hellirinn hefur verið gerður aðgengilegur með hringstiga en umferð um hann er aðeins leyfð með leiðsögn.
Hraunhellar myndast meðan hraunið rennur og það er enn að storkna og kólna. Þeir verða til þegar kvika tæmist úr lokaðri hraunrás, þegar hraunhella lyftist eða þegar kvika sígur undan storknuðu yfirborði. Nokkrir stórir dropsteinar hafa myndast í hellinum sem hafa verið lagfærðir eftir skemmdir.
Á sumrin eru fastar ferðir með leiðsögn landvarða en yfir vetrartímann er boðið upp á ferðir fyrir hópa eftir samkomulagi (12-25 manns). Skráning og nánari upplýsingar hjá þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Nauðsynlegt er að vera vel klæddur og með hanska því kalt er í hellinum. Hjálmar og höfuðljós eru útveguð af leiðsögumönnum. Ferð í Vatnshelli tekur um klukkustund.