Þingvellir

Uncategorized @is

Þingvellir, merkasti sögustaður landsins. Þar var alþingi háð í nær níu aldir og þar gerðust margir örlagaríkustu atburðir þjóðarsögunnar. Þingstaðurinn var við norðurenda Þingvallavatns. Búðartóttir eru þar og í Almannagjá.
Lögberg, merkasti staður þingsins, talinn hafa verið á austurbarmi Almannagjár.Falleg kirkja, reist árið 1859 er á Þingvöllum. Þar er þjóðargrafreitur og hvíla þar Einar Benediktsson og Jónas Hallgrímsson.
Árið 1928 voru Þingvellir ásamt nokkrum hluta Þingvalla sveitar gerðir að þjóðgarði. Skipulögð dagskrá er í Þjóðgarðinum og Fræðslumiðstöð með margmiðlunarsýningu.
Þingvellir voru samþykktir á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, 2. júlí 2004.