Skaftafell

Uncategorized @is

Skaftafell, vestasti bær í Öræfum, forn þingstaður Skaftfellinga. Þrenn bæjarhús standa hátt enda flutt upp á brekkurnar vegna ágangs Skeiðarár.
Útsýni geysivíðsýnt og fjölbreytileg. Hringsjá á Sjónarskeri. Náttúrufar fegurra og marg breytilegra en víðast annars staðar, fjölbreytilegur gróður, skógar, fossar, gljúfur, fjöll, jöklar og dalir.
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli var stofnaður 15. septem ber 1967 og var þjóðgarðslandið þá um 500 km 2 . Hann var stækkaður 1984 og aftur 2004 og er nú er orðinn 4.807 km 2 . Hann þekur nú um 2/3 hluta Vatnajökuls og skiptist í þrjú ólík svæði: Skaftafell ásamt Skeiðarársandi, Lakagíga og jökulhettuna sjálfa.
Svartifoss er þekktasti fossinn í þjóðgarðinum en hann er girtur stuðlabergi, einstök náttúrusmíð. Skaftafells jökull er skammt frá þjónustumiðstöðinni og þangað er malbikaður göngustígur. Á sandinum við brekkufótinn er þjónustumiðstöð og sérstök Gestastofa Umhverfisstofnunar þar sem ferðafólki gefst kostur á að kynna sér á mjög aðgengilegan hátt sögu og sérkenni staðarins.