GPS: 64.13730 -20.30930
Gamla laugin er staðsett í Hverahólmanum við Flúðir. Margir fallegir hverir eru við laugina, meðal annars lítill goshver, litli Geysir sem gýs á nokkurra mínútna fresti.
Laugin hefur nú verið endurbyggð í upprunalegri mynd og leitast við að halda sérstöðunni. Nýtt þjónusthús er við laugina með góðri búningaaðstöðu og veitingum.
Að baða sig í Gömlu lauginni er einstök upplifun allt árið um kring, hverasvæðið og gufan gefa svæðinu dulúðugan blæ. Vatnið er 38–40 °C heitt allt árið.
- Flúðir / Secret Lagoon
- Flúðir / Secret Lagoon
- Flúðir / Secret Lagoon
- Flúðir / Secret Lagoon